Í hraða nútímas gleymum við oft að hlusta en leggjum ofur áherslu á að komast sjálf að í umræðunum. Hlustun er einn veigamesti þátturinn í samskiptum og tækifærið til að skilja menn og málefni.

Farið er ítarlega yfir þá tækni sem beitt er í virkri hlustun og gerðar æfingar. Með virkri hlustun áttu auðveldar með að setja þig í spor annarra og sá sem hlustað er á finnur fyrir virðingu og áhuga þess sem hlustar.

,,Ég skilaboð“ fela í sér samskiptaform þar sem við tölum út frá sjálfum okkur og segjum hvað okkur finnst í stað þess að dæma þann sem við tölum við eða segja hvað okkur finnst neikvætt í framkomu hans. Þegar við notum ég skilaboð einkennast erfið samskipti af virðingu í stað dómhörku.

Námskeiðið hentar vel til að efla gæði samskipta, virðingu og skilning milli einstaklinga og/eða sviða.

Hér getur þú sent skilaboð til mín

Námskeið í samskiptafærni í leik og starfi
Öll námskeiðin