Farið er yfir gagnleg atriði varðandi fundi svo sem undirbúning, fundarboð, fjölda, markmið og lengd funda.

Í starfsmannakönnunum fyrirtækja er upplýsinga­miðlun einn af þeim þáttum sem starfsmenn telja oft að sé ábótavant. Rætt er um hvaða upplýsingum þarf að miðla og hvernig það er gert, t.d. hvenær fundaformið hentar.

Stjórnun á fundum, lýðræðislegt samskiptaform og virðing eru þættir sem skapa jákvætt andrúmsloft og viðhorf gagnvart einstaklingum og hugmyndum sem geta eflt flæði, tengingar og framþróun. Streita, hagsmunagæsla og valdabarátta á fundum getur unnið gegn málefnalegri framþróun.

Hér getur þú sent skilaboð til mín

Til baka í:

Námskeið í færni á vinnustað
Öll námskeiðin