Að brotna ekki heldur rísa upp öflugri en fyrr
- Þrautseigju er hægt að efla og rækta með sér sem eykur hæfni til að takast á við breytingar, álag og áföll í starfi og einkalífi. Að geta aðlagast breytingum og tileinkað sér þrautseigju er talinn vera einn af lykilfærniþáttum í atvinnulífinu. Auk þess styður þrautseigja við betri lífsgæði á tímum álags og erfiðleika.
- Hugtakið þrautseigja er notað til að skilgreina þá hæfni sem einstaklingur beitir þegar hann mætir mótlæti í lífinu.
- Fjallað verður um hvernig við túlkum og bregðumst við því sem hendir okkur og hvernig þjálfa má og efla þrautseigju.
Á námskeiðinu er farið yfir:
- Helstu skilgreiningar á þrautseigju
- Helstu þætti þrautseigju og hvernig hún birtist í daglegu lífi
- Hagnýtar leiðir til að efla og rækta með sér þautseigju í daglegu lífi og vinnuumhverfi (megin áhersla námskeiðsins)
Ummæli þátttakanda um námskeiðið:
,,Frábær kennari, fagleg og skemmtileg”.
,,Eitt besta og gagnlegasta námskeið sem ég hef farið á og eru þau nú ansi mörg”.
,,Hagnýtt bæði fyrir vinnuna hjá mér þar sem eru breytingar og lífið sjálft, auk þess skemmtilegt .”
Námskeið SHJ ráðgjafar eru fagleg, hagnýt og vekjandi