Um er að ræða tvær útgáfur af þessu námskeið. Annars vegar er námskeið fyrir starfsmenn sem ekki eru með mannaforráð og hins vegar fyrir stjórnendur með mannaforráð og er þá farið í leiðréttingarsamtöl við starfsmenn, leiðir til að breyta hegðun starfsmanna, samskipti við undirmenn o.fl.
Góð samskiptafærni er gríðarlega mikilvæg og getur skipt sköpum varðandi farsæld í starfi og einkalífi.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur átti sig á eigin samskiptamynstrum. Hver og einn kortleggur hvað er gagnlegt og árangursríkt í samskiptastíl viðkomandi og hvað mætti betur fara. Á námskeiðinu þurfa þátttakendur að líta í eiginn barm og setja sér markmið varðandi eigin samskiptaaðferðir í því skyni að ná betri árangri og aukinni ánægju.
Sérstaklega er farið yfir vænlegar leiðir til að ná fram breytingum í samskiptamynstrum, samvinnu í hóp og ólíkum samskiptastílum. Farið er yfir þessi atriði á námskeiðinu auk þess sem þátttakendur vinna verkefni.
Hér getur þú sent skilaboð til mín