Hagnýt fræðsla fyrir vinnustaði og hópa
SHJ ráðgjöf býður upp á rafræna og/eða staðbundna fræðslu (námskeið) þar sem farið er á hagnýtan hátt yfir leiðir til að styðja við jákvæða vinnustaðamenningu, vellíðan og árangur. Einnig er fjallað um helstu áskoranir og tækifæri sem felast í netsamskiptum, heimavinnu, eigin viðhorfum og því að takast á við óvissu.
Meðal efnisþátta:.
- Lykilþættir vellíðunar og jákvæðrar vinnustaðamenningar.
- Að takast á við breytingar og óvissu.
- Fjarsamskipti – hvað er mikilvægt og hvað þarf að varast?
- Eigið viðhorf, val og venjur.
- Að vinna heima – áskoranir og gæði.
- Gott dagsskipulag – hvað felst í því?
- Samskipti við nýjar aðstæður; öryggi, félagsskapur.
- Hvernig er hægt að efla eigin þrautseigju og seiglu?
,,Frábær fyrirlestur. Vel farið yfir áskoranir og hvernig best er að takast á við þessa flóknu stöðu.“ Stefán Eiríksson útvarpsstjóri RÚV
,,Afar gagnleg efnistök og hagnýt samskiptaráð fyrir starfsfólk á krefjandi tímum. Fengum mjög jákvæð viðbrögð frá okkar starfsmönnum eftir þetta erindi.“ Hildur Sigurðardóttir, mannauðsstjóri RÚV
SHJ ráðgjöf – hagnýtt – faglegt – vekjandi
Fræðslan er sniðin að þörfum verkkaupa hverju sinni og lögð rík áhersla á að þátttakendur tengi efnið við eigin raunveruleika; áskoranir, vaxtarmöguleika og lífsgæði.