Hverjum hrósaðir þú í dag?
Kannski stráknum á kassanum í búðinni, manninum á bensínstöðinni sem aðstoðaði þig með ljósaperu, stelpunni í ísbúðinni, samstarfsfélaga þínum sem gott er að vinna með eða kennaranum sem leggur sig daglega fram um að barninu þínu líði vel í skólanum? Venjum okkur á að hrósa alltaf þegar tilefni er til. Ástundum þakklæti og sköpum gleði. Látum til okkar taka, í daglegum samskiptum, maður á mann. Einlægt hrós gleður og hvetur. Höfum orð á því sem vel er gert, eins og; takk fyrir frábæra þjónusta; vel gert; þakka þér kærlega fyrir að leggja þig svona vel fram.

Hefur þú hrósað þeim sem þér þykir vænst um í dag?
Barninu þínu, maka, foreldri, systkini, vini eða vinkonu? Þegar við hrósum erum við að styrkja þá framkomu sem við hrósum fyrir, festa hana í sessi. Þannig aukum við líkurnar á að tiltekin hegðun verði endurtekin. ,,Ég tek eftir því hvað þú ert duglegur að skipuleggja þig í prófunum, þú stendur þig vel og ég er stoltur af þér“ er setning sem hvetur unglinginn áfram, veitir hvatningu og viðurkenningu.  ,,Þú ert snillingur að elda“ getur ýtt undir aukna takta makans í eldhúsinu, hver hefur á móti því?

Tekur þú vel á móti hrósi?
Höfnum ekki hrósi sem við fáum. Þökkum fyrir það og látum það ylja okkur, hvetja og gleðja. Ef við segjum ,,Æi, þetta er nú bara gömul peysa sem ég keypti á útsölu“ þá erum við að lítilsvirða hrósið, þann sem hrósar og okkur sjálf.  Segjum heldur ,,Gaman að heyra, takk fyrir“.

Höfum alltaf orð á því sem vel er gert,
þannig ástundum við þakklæti og sköpum gleði.

Sigríður Hulda Jónsdóttir
SHJ ráðgjöf

Hrós

One thought on “Hrós

  • 04/04/2015 at 13:30
    Permalink

    Mikið rosalega var þetta vel skrifað og tjáning þín og ráðgjöf alveg meirihàttar.

    Reply

Skilaboð

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.